Steingrímur Gauti

Steingrímur Gauti Ingólfsson (f. 1986) býr og starfar í Reykjavík. Hann lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur í sýningarhaldi síðastliðin ár. Hann hefur tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis og vinnur nú að sinni tólftu einkasýningu. Nýlegar sýningar eru m.a. Innanyfir í Gallerý Port, Soft Approach í Galerie Marguo í París og Life in a Day í Diller Daneils í Zurich. Steingrímur Gauti nálgast málverkið af alúð og léttleika, með því að aðskilja sjálfið og fyrirframgefnar hugmyndir frá daglegu sköpunarferli sínu. Verk hans leika með grunnspurningar um myndlist og fagurfræði, eru í senn kraftmikil og lítillát en fjalla í raun ekki um annað en sig sjálf og sjónræn áhrif þeirra á áhorfandann. Ónákvæmni, endurtekning og höfnun gagnrýnnar hugsunar einkenna vinnubrögð hans og útkoman ber þess jafnan merki, þar sem verkin dansa á línu þess ljóðræna og barnslega.
Steingrímur Gauti

Fáðu send skilaboð þegar ný verk eftir viðkomandi listamann koma á skrá. 

Skráðu netfangið þitt hér og við sendum þér fleiri fáanleg verk. 

 

Email*
Nafn*
Skilaboð*
Skrá á póstlista?

Works

oil on canvas
100
x 80 cm
590.000 kr.
SG0013
oil on canvas
100
x 80 cm
590.000 kr.
SG009
oil on canvas
100
x 80 cm
590.000 kr.
SG0012
Oil, acrylic, crayon, oil pastel
150
x 100 cm
SG014
Shopping Cart