Hlið / Gate
Vatnslitur, blek og blýantur á pappír
97
x 67 cm
310.000 kr.
259

Teikningar Siggu Bjargar hafa vakið athygli og verið sýndar víða um heim enda fjalla þær um tilfinningar og reynslu sem er öllu fólki sameiginleg. Þær birta okkur veröld handan hulunnar og þar búa torkennilega samsettar verur – ólögulegar, illa skapaðar og að því er virðist ringlaðar – sem þó virka ósköp mannlegar í daglegu amstri sínu og vandræðum. Hver sýning er sérstakur viðburður því Sigga Björg vinnur líka beint á veggi sýningarsalanna svo stemningin í verkum hennar flæðir um allt rýmið. Myndirnar feta einstigið milli raunsæis og abstraksjónar, hugarflugs og veruleika, frásagnar og hreinnar fagurfræðilegrar upplifunar. – Jón Proppé

Sigga Björg útskrifaðist úr Myndlistadeild LHÍ árið 2001. Eftir útskrift fluttist Sigga Björg til Glasgow í Skotlandi þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Síðan þá hefur hún sýnt í söfnum og galleríum víða um heim. Verk Siggu Bjargar er að finna í mörgum opinberum söfnum hérlendis og erlendis Fyrir frekari upplýsingar endilega heimsækið heimasíðu Siggu Bjargar: www.siggabjorg.net

FREKARI UPPLÝSINGAR

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verk eða listamann vinsamlega sendu okkur fyrirspurn með hnappinum hér að neðan. 

Stanslaus titringur IV
Prent / Print
50
x 67 cm
85.000 kr.
222
Shopping Cart